Lífið

Fyrrverandi barnfóstra Halle Berry vill nálgunarbann

Gabriel Aubry með dóttur sinni Nahla þegar allt lék í lyndi.
Gabriel Aubry með dóttur sinni Nahla þegar allt lék í lyndi.
Fyrrverandi barnfóstra Halle Berry hefur barist við barnsföður leikkonunnar fyrir dómstólum. Nú síðast krafðist hún nálgunarbanns gegn honum en fékk ekki.

Alliance Kamdem, fyrrverandi barnfóstra Hollywood-stjörnunnar Halle Berry, hefur átt í harðvítugum deilum við frönsk-kanadísku karlfyrirsætuna Gabriel Aubry, barnsföður Berry og fyrrverandi kærasta.

Kamdem höfðaði mál gegn Aubry þar sem hún hélt því fram að hann hefði ýtt henni út um hurð á meðan hún var með dóttur hans og Berry, Nahla, í fanginu. Barnfóstran óttaðist einnig að Aubry myndi hefna sín á henni fyrir að hafa höfðað málið og krafðist nálgunarbanns fyrir dómstólum. Þeirri kröfu hefur nú verið vísað frá.

Samkvæmt vefsíðunni TMZ heldur Kamdem því einnig fram að Aubry hafi ýtt henni grimmilega í gegnum aðrar dyr í júní síðastliðnum. Hún segir jafnframt að fyrirsætan hafi rifið Nahla úr höndunum á henni á dónalegan hátt þegar Berry var að leika í kvikmynd á Spáni.

Barnfóstran hefur lítið álit á Aubry og telur að hann hafi haft horn í síðu hennar síðan hún hóf störf í júní síðastliðnum en hún var rekin eftir að málið fór fyrir dóm. Aubry er einnig sagður hundfúll og telur að fóstran hafi reynt að eyðileggja samband hans við dóttur sína.

Berry og Aubry hættu saman árið 2010 eftir fimm ára samband. Árið 2008 eignuðust þau dótturina Nahla sem verður fjögurra ára í mars. Síðan þá hafa þau rifist í dómstólum um umgengnisréttinn og krafðist Berry þess að hann fengi ekki að sjá dóttur sína nema barnfóstra væri einnig á staðnum.

Berry er núna trúlofuð leikaranum Olivier Martinez, sem bar upp bónorðið um síðustu jól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.