Lífið

Skeggleysi bara tískubóla

Skegg og gaman Stjúri hefur lengi predikað fyrir skeggvexti og segir skeggleysi vera tískubólu sem er við það að springa.fréttablaðið/pjetur
Skegg og gaman Stjúri hefur lengi predikað fyrir skeggvexti og segir skeggleysi vera tískubólu sem er við það að springa.fréttablaðið/pjetur
Vel hært skegg er vinsælt um þessar mundir. Á tískusýningum fatahönnuðanna Henrik Vibskov og Vivienne Westwood mátti einnig sjá skeggjaðar fyrirsætur. Tískubólan einskorðast því ekki við götur Reykjavíkur.

Tíska „Ég hef predikað fyrir skeggvexti í mörg ár og finnst að allir karlmenn ættu að bera skegg," segir Stjúri sem rekur rakarastofu í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. „Ég segi frekar að andlitsrakstur sé tískubóla enda varð rakstur ekki vinsæll fyrr en rétt fyrir iðnbyltingu og ég vona að sú tískubóla fari að deyja út,"

Sjálfur rakaði hann sig síðast árið 1996 og hefur skartað einhvers konar skeggi allar götur síðan. Að hans sögn eru til margar ólíkar útgáfur af skeggjum og ber þar helst að nefna Skógarhöggsmanninn, svokallað mánaðarskegg og hökutopp. Það er persónubundið hvað hverjum þykir fallegt og fer valið mikið eftir andlitslagi.

Stjúri segir kosti skeggsins marga og nefnir sem dæmi að það veiti góða vörn fyrir bæði hita og kulda.

„Það skiptir litlu máli hvernig þú lítur út undir því, þannig að maður getur falið sig á bak við skeggið. Svo þegar maður tekur sopa af bjór festist froðan oft í skegginu og þá þarf maður að sjúga hana úr. Það er bæði karlmannleg og góð tilfinning."

En ókostir fylgja líka skegginu. „Mörgum klæjar undan skegginu í fyrstu," segir Stjúri. „Svo eiga matarleifar til að festast í því, en maður verður að vera duglegur að þrífa sig og forðast að borða eins og dýr."

Aðspurður segir Stjúri eiginkonu sína hrifna af skeggvexti hans enda hafi hann verið skeggjaður alveg frá því að þau kynntust fyrst. „Hún vill ekki sjá mig skegglausan. Ég veit ekki hvað það þýðir, kannski þorir hún ekki að sjá það sem býr undir skegginu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.