Lífið

Í góðri stemningu á Sundance

Ánægð Eva María er himinlifandi yfir viðtökunum á myndinni Goats á Sundance-hátíðinni en hún er meðframleiðandi að myndinni.
Ánægð Eva María er himinlifandi yfir viðtökunum á myndinni Goats á Sundance-hátíðinni en hún er meðframleiðandi að myndinni.
„Hér er góð stemning og rosalega mikið af fólki í bænum," segir Eva María Daníels, framleiðandi en hún er stödd í Utah þar sem hún frumsýndi myndina Goats á Sundance-kvikmyndahátíðinni.

Eva María hefur starfað við framleiðslu kvikmynda í Los Angeles í dágóðan tíma og getið sér góðs orðs innan kvikmyndabransans en hún er meðframleiðandi að myndinni Goats.

Myndin skartar þeim David Duchovny, Veru Farmiga, Graham Philips, Keri Russell og Ty Burrell en hann er þekktur úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Modern Family. Allir leikararnir voru mættir á Sundance til að fylgja myndinni eftir en hún var frumsýnd fyrir fullu húsi á hátíðinni og hefur Duchovny verið sérstaklega hrósað fyrir frammistöðu sína.

„Við sýndum myndina í stærsta bíóinu hérna sem tekur um 1.300 manns og það var alveg stappað. Eftir myndina var spurt og svarað með leikurum og leikstjóra. Þá fengum við smjörþefinn af viðbrögðum áhorfenda sem voru mjög góð," segir Eva María og bætir við að allir í tökuliðinu séu mjög ánægðir með viðtökurnar. Ýmislegt hefur gengið á í aðdraganda myndarinnar, eins og leikaraskipti en upphaflega átti leikkonan Rooney Mara að fara með aðalhlutverkið en hún hætti við eftir að hún landaði hlutverki Lisbeth Salander í The Girl with the Dragon Tattoo.

Goats var sýnd í sérstökum frumsýningarflokki og verður sýnd þrisvar sinnum í viðbót yfir hátíðina en uppselt er á allar sýningarnar að sögn Evu Maríu.

„Nú er bara að bíða og vona að einhver vilji dreifa myndinni í kvikmyndahús. Ég er líka að vona að myndin verði sýnd á Íslandi á þessu ári." - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.