Samstarf

Traustar lausnir fyrir fyrirtæki og sveitarfélög

Guðmundur Kristinsson er sölu- og markaðsstjóri Merkurpoint sem undanfarinn áratug hefur boðið MerkurPOS og IBM–afgreiðslulausnir og rekstrarhugbúnað fyrir fyrirtæki og sveitarfélög.mynd/gva
Guðmundur Kristinsson er sölu- og markaðsstjóri Merkurpoint sem undanfarinn áratug hefur boðið MerkurPOS og IBM–afgreiðslulausnir og rekstrarhugbúnað fyrir fyrirtæki og sveitarfélög.mynd/gva
MerkurPOS afgreiðslukerfi og rekstrarhugbúnaður samanstendur af afgreiðsluhugbúnaði fyrir verslanir, ferðaþjónustu, sundlaugar og líkamsræktarstöðvar, snyrti- og hárgreiðslustofur, verkstæði, veitingahús ásamt fleiri hugbúnaðarlausnum. MerkurPOS afgreiðsluhugbúnað á má finna í mörgum sveitarfélögum og fyrirtækjum. Íslenskt kassakerfi MerkurPOS MerkurPOS er íslenskur hugbúnaður sem byggir á þörfum íslenskra notenda. „Hugbúnaðurinn hefur verið á markaði í yfir áratug og því kominn með góða reynslu og stöðugleika í notkun,“ útskýrir Guðmundur G. Kristinsson sölu- og markaðsstjóri Merkurpoint. „Í fyrstu var boðið upp á staðlað og einfalt afgreiðslukerfi sem sameinar notendavænt viðmót, hraðvirkt sölukerfi og stútfullan pakka af ýmsum stjórnunartólum.” Auðvelt að læra á MerkurPOS Að sögn Guðmundar er MerkurPOS-afgreiðslukerfið auðvelt í notkun það tekur enga stund að læra á það. „Við erum hvað stoltust af því hversu notendavænt kerfið okkar er, það tekur örskamma stund að stofna vörur og viðskiptamenn og öll vinnsla er gerð eins einföld og hægt er. Áherslan hjá okkur hefur alltaf verið á að gera frábært kassakerfi og helsti kosturinn við að vera með sjálfstætt kassakerfi frekar en bókhaldhaldskerfi með ábyggðu kassakerfi er sá að maður sleppur við að eiga við allar flóknu stillingarnar sem oft tilheyra bókhaldskerfum. Kerfið er þannig straumlínulagað til að vinna flókin verkefni á sem einfaldastan hátt. „Öll nauðsynleg rafræn viðskipti eru fyrir hendi, sem og tenging við þjónustuaðila POSA. Kerfið er einnig hægt að tengja við flest bókhaldskerfi, eins og Tok, Tok+, Axapta, Navision, Fjölni og fleiri,“ útskýrir Guðmundur.“ Fullkomin sölugreining „Okkar kerfi er hannað með nýjustu tækni í huga þannig má alltaf hafa yfirsýn og aðgang að þínum gögnum í gegnum fartölvu, spjaldtölvuna, snjallsímann eða hvar sem þú ert nettengdur. Þannig höfum við vissa sérstöðu því að aðgangur að gögnum og mjög fullkomin sölugreining fæst í gegnum heimasíðu. Á henni má sjá tekjuflæði, fjölda viðskiptavina, meðalsölu á viðskiptavin, meðalfjölda vörueininga á viðskiptavin, heildarsölu á söluaðila, skiptingu á greiðsluformi og hvaða vara selst mest, hvaða vara skilar mestri framlegð og hvaða vara er ekki að hreyfast. Það hjálpar þeim sem reka fyrirtæki að skipuleggja birgðahald, sjá vöru og viðskiptaflæði og þannig auka hagnað í rekstri.“ Með þessari tækni tryggjum við líka afritatöku af gögnum viðskiptavina. Rekstrarbúnaðarlausnir fyrir flestar atvinnugreinar Á liðnum árum hefur MerkurPOS þróað fjölmörg viðbótarkerfi fyrir daglegan rekstur. „Þar má nefna reikninga-, innheimtu-, tilboðs- og verkefnastjórnunarkerfi, sérhæfðan hugbúnað fyrir ferðaþjónustu og aðgangskerfi fyrir sundlaugar,“ segir Guðmundur. „Með árunum hefur þróast gott samstarf við fyrirtækið Maritech sem er með NAV-bókhaldskerfi og fjölda sérlausna fyrir stærri fyrirtæki og sveitarfélög. Merkurpoint og Maritech hafa í mörg ár starfað saman með samtengdan bókhalds- og afgreiðsluhugbúnað í fyrirtækjum og sveitarfélögum.“ Reikningar gerðir og sendir í heimabanka Um mánaðarmót er hægt að taka saman sölu í reikning hjá viðskiptavinum, prenta út reikninga og búa til innheimtuskrá til að senda í innheimtuumhverfi hjá viðskiptabanka. Síðan er hægt að bóka innborganir á viðskipamenn og þannig hægt að fylgjast með greiðslustöðu viðskiptamanna frá mánuði til mánaðar og senda þeim viðskiptayfirlit. MerkurPOS á IBM-tölvum er fullkomin lausn Guðmundur upplýsir að undanfarin ár hafi Merkurpoint selt mest af IBM-afgreiðslutölvum frá Nýherja. „Í veitingarekstri er oft álag og krafa um vandaðan tölvubúnað sem þolir mikið álag og endist lengi. Merkurpoint hefur lengi mælt með IBM-tölvum í það rekstrarumhverfi og byggir á áralangri reynslu af notkun afgreiðslutölva í kröfuhörðu umhverfi. Mörg sveitarfélög horfa einnig fram í tímann og fjárfesta í tölvubúnaði með endingu og gæði í huga. Því kaupa þeir IBM-afgreiðslutölvur og jaðarbúnað fyrir hugbúnað frá Merkurpoint og Maritech. Mest hefur selst af IBM Surepose E26 afgreiðslutölvu og er meirihluti viðskiptavina Merkurpoint síðustu árin að kaupa þessa frábæru tölvu,“ segir Guðmundur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×