Lífið

Fær barnabætur eins og aðrir

Verðandi foreldrar Viktoría krónprinsessa og Daníel prins.
Verðandi foreldrar Viktoría krónprinsessa og Daníel prins.
Viktoría krónprinsessa af Svíþjóð og Daníel prins, eiginmaður Viktoríu, fá hefðbundnar barnabætur frá sænsku tryggingastofnuninni þegar barn þeirra er komið í heiminn hvort sem þau vilja það eða ekki.

Fréttavefur Dagens Nyheter vitnar í starfsmann tryggingastofnunarinnar sem segir að allir foreldrar fái þessar bætur. Vilji krónprinsessan og eiginmaður hennar ekki halda bótunum verði þau að gefa peningana.

Viktoría og Daníel eiga einnig rétt á fæðingarorlofsgreiðslum en þó ekki fullum greiðslum.- ibs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.