Lífið

Gettu betur-krakkarnir óhugnanlega klárir

Stressandi föstudagur Þórhildur Ólafsdóttir, nýliðinn í Gettu Betur þríeykinu er stressuð fyrir fyrstu sjónvarpsútsendingu þáttarins á föstudaginn.
Stressandi föstudagur Þórhildur Ólafsdóttir, nýliðinn í Gettu Betur þríeykinu er stressuð fyrir fyrstu sjónvarpsútsendingu þáttarins á föstudaginn.
„Ég verð bara að vera hreinskilin og viðurkenna að ég er frekar kvíðin fyrir sjónvarpsútsendinguna," segir Þórhildur Ólafsdóttir, annar helmingur dómaratvíeykisins í Gettu betur.

Fyrsta sjónvarpsútsending ársins á þessum sívinsæla spurningaþætti framhaldsskóla landsins fer fram á föstudaginn en þá etja kappi Verslunarskóli Íslands og Fjölbrautaskóli Suðurlands. Þórhildur er nýliðinn í hópnum en Edda Hermannsdóttir er spyrill líkt og í fyrra og Örn Úlfar Sævarsson er spurningahöfundur og dómari ásamt Þórhildi en embætti stigavarðarins var lagt niður í ár.

„Þetta hefur gengið mjög vel. Við höfum fengið ágætis reynslu í útvarpinu síðan í janúar og erum búin að slípast vel saman. Þetta hefur verið lærdómsríkt ferli hingað til og ber kannski helst að nefna yfirlið spyrilsins í beinni útsendingu í útvarpinu. Ég vona að það endurtaki sig ekki," segir Þórhildur og vísar í atvik þegar útvarpskonan Guðrún Dís Emilsdóttir leið út af í beinni útsendingu þegar hún leysti Eddu af hólmi.

Þórhildur viðurkennir að hún sé frekar stressuð fyrir föstudaginn en það síðasta sem hún vill er að það komi upp eitthvert vafaatriði varðandi dómgæsluna í beinni. „Þetta eru náttúrulega alveg óhugnanlega klárir krakkar og mig langar að gera þetta vel en það er snúið að búa til spurningar fyrir svona eldklára einstaklinga," segir Þórhildur sem ætlar að grípa til ýmissa ráða til að róa taugarnar á föstudaginn.

„Ég ætla fyrst og fremst að slaka á í kaffidrykkjunni yfir daginn og skelli mér kannski í Tabata tíma til Eddu spyrils." Gettu betur er á dagskrá Rúv á föstudaginn klukkan 20.10. - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.