Lífið

Tilboð sem þau gátu ekki hafnað

Íslenska dansveitin GusGus fékk tilboð frá tískuhúsinu Bulgari sem hún gat ekki hafnað. Hljómsveitin spilar í partýi á tískuvikunni í Mílanó um helgina.
Íslenska dansveitin GusGus fékk tilboð frá tískuhúsinu Bulgari sem hún gat ekki hafnað. Hljómsveitin spilar í partýi á tískuvikunni í Mílanó um helgina. MYND/ARIMAGG
„Við fengum einfaldlega tilboð sem við gátum ekki hafnað," segir Birgir Þórarinsson einn meðlima hljómsveitarinnar GusGus en tískurisinn Bulgari fær sveitina til Mílanó til að halda uppi fjörinu á tískuvikunni.

Hljómsveitin flaug út í dag og kemur heim á laugardaginn en ásamt Birgi, sem betur er þekktur sem Biggi veira, skipa þau Urður Hákonardóttir, Daníel Ágúst Haraldsson, Stephan Stephensen og Högni Egilsson danssveitina. Biggi vissi ekki mikið um viðburðinn en taldi að um væri að ræða stórt eftirpartý eftir sýningu Bulgari á tískuvikunni. „Þetta verður eitthvað tískupartý og bara mikið stuð. Það verða eflaust allir rosa flottir og fínir eins og tískupartýum sæmir," segir Biggi en Bulgari bókaði sveitina í gegnum umboðsskrifstofu GusGus í Þýskalandi.

„Við spiluðum í Mílanó síðasta sumar og þeir tónleikar gengu svakalega vel. Mig grunar helst að útsendarar frá þeim hafi séð okkur á þeim tónleikum og því ákveðið að fá okkur yfir."

Mikið flakk er á sveitinni þessa dagana en hún er nýkomin frá norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem fór fram í Ósló um síðustu helgi.

„Það var frábært í Ósló og gekk vel. Við höfum ekki verið að spila mikið í Skandinavíu heldur einbeitt okkur að Austur-Evrópu og Þýskalandi. Nú höfum við kannski opnað einhverjar dyr þar í kjölfarið á hátíðinni." -áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.