Lífið

Auglýsa eftir hæfileikafólki í nýjan sjónvarpsþátt

Nýr þáttur
Hilmar Björnsson dagskrárstjóri SkjásEins er mjög spenntur fyrir þættinum Hæfileikakeppni Íslands.
Nýr þáttur Hilmar Björnsson dagskrárstjóri SkjásEins er mjög spenntur fyrir þættinum Hæfileikakeppni Íslands.
Hæfileikakeppni Íslands er nýr þáttur sem hefur göngu sína á SkjáEinum í mars. Í verðlaun er ein milljón króna og allir geta tekið þátt.

„Það er mikil spenna í okkur sem að þættinum standa, svo nú reynir bara á þjóðina að sýna hvað í henni býr," segir Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri SkjásEins um þáttinn Hæfileikakeppni Íslands sem hefur göngu sína í mars.

Hæfileikakeppni Íslands er samstarfsverkefni SkjásEins, mbl.is og Saga Film og geta allir tekið þátt með því að senda inn myndband með hæfileika sínum. „Að geta sungið Gamla Nóa aftur á bak og staðið á haus á sama tíma er til dæmis flottur hæfileiki," segir Hilmar og bætir við að verðlaunin séu ekki af verri endanum, eða ein milljón króna auk nafnbótarinnar Hæfileikaríkasti Íslendingurinn.

Hægt verður að senda inn myndbönd frá og með næsta mánudegi og verða að öll myndböndin birt á Mbl.is. Þau fjögur atriði sem fá flest meðmæli þar fara áfram í undanúrslit, auk 76 atriða sem valin eru af sérstakri fjögurra manna dómnefnd. Það eru því alls 80 atriði sem keppa í undanúrslitum og fá tækifæri til að sýna atriði sitt á sviði fyrir framan dómnefndina. Undanúrslitin fara fram í fjórum þáttum og fær kýs almenningur fimm atriði úr hverjum þætti áfram í úrslitin.

„Það verða 20 atriði sem keppa til úrslita í 90 mínútna löngum lokaþættinum. Dómnefndin hefur svo svigrúm til að bæta við nokkrum atriðum sem þeim þykir áhugaverð en hafa ekki komist upp úr undanúrslitunum," segir Hilmar og bætir við að úrslitaþátturinn verði öllu íburðameiri en hinir og að það verði undir þjóðinni komið að velja sigurvegara með SMS kosningu. Hann taldi hvorki tímabært að gefa upp hverjir ættu sæti í dómnefnd né hver stýrir þættinum.

Fyrsti þátturinn fer í loftið þann 30.mars næstkomandi og allar upplýsingar um skráningu er að finna á mbl.is - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.