Lífið

Potter-leikari í fangelsi

í fangelsi Jamie Waylett, sem lék í kvikmyndunum um Harry Potter, hefur verið sendur í tveggja ára fangelsi.
nordicphotos/getty
í fangelsi Jamie Waylett, sem lék í kvikmyndunum um Harry Potter, hefur verið sendur í tveggja ára fangelsi. nordicphotos/getty
Harry Potter-leikarinn Jamie Waylett, sem fór með hlutverk hins illgjarna Vincents Crabbe, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir dólgslæti og að vera með þýfi undir höndum.

Atburðurinn átti sér stað í óeirðunum sem ríktu í London síðasta sumar og náðu eftirlitsmyndavélar myndum af Waylett er hann gekk um með bensínsprengju í höndum og drakk úr stolinni kampavínsflösku.

Dómari málsins lét þau orð falla að þó Waylett hafi ekki kveikt í sprengjunni hafi hann hagað sér á ógnandi máta og stefnt öðrum í hættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.