Lífið

Álíka hugrökk og Jack Bauer

Kiefer Sutherland segir að persónan sín í Touch sé álíka hugrökk og Jack Bauer.
Kiefer Sutherland segir að persónan sín í Touch sé álíka hugrökk og Jack Bauer.
Kiefer Sutherland segir að persónan sem hann leikur í nýjum sjónvarpsþáttum, Touch, sé álíka hugrökk og Jack Bauer sem hann lék í spennuþáttunum 24.

Leikarinn vonast til að fólk kunni að meta persónu sína, Martin Bohm, sem reynir að ná tengslum við mállausan son sinn í þáttunum. „Það er margt líkt með Touch og 24. Á sama hátt og Jack þurfti að glíma við óyfirstíganlegar hindranir mun Martin aldrei eiga þetta ákjósanlega samband sem faðir og sonur vonast til að eiga," sagði Sutherland. „Hann berst fyrir betra sambandi við son sinn og þess vegna eru báðar persónurnar hugrakkar á sinn hátt."

Spurður hvað fékk hann til að leika í þáttunum sagði leikarinn að handritið hefði verið afar heillandi og uppfullt af von. „Hugmyndin um að ná þessum tengslum fékk mig til að hugsa meira um þá ábyrgð sem ég þarf að gangast við í eigin lífi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.