Lífið

Vill draga úr reykingum

enginn reykur
Michael Bloomberg berst gegn reykingum víða um heim.
enginn reykur Michael Bloomberg berst gegn reykingum víða um heim.
Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, ætlar að leggja fram tæpa 28 milljarða króna til að draga úr reykingum í Kína, Indlandi og í öðrum þróunarríkjum.

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni búa þrír fjórðu hlutar af þeim milljarði jarðarbúa sem reykir í löndum sem hafa úr litlum peningum að moða. Þess vegna vill Bloomberg, sem barðist fyrir nýjum reykingalögum í New York, einbeita sér að þeim löndum. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni deyja árlega um sex milljónir vegna reykinga, þar af rúmlega 600 þúsund af völdum óbeinna reykinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.