Samstarf

Fyrsta skrefið er hjá Dekkjasölunni

Valdimar að yfirfara gæði dekkja og taka myndir fyrir heimasíðuna dekkjasalan.is
Valdimar að yfirfara gæði dekkja og taka myndir fyrir heimasíðuna dekkjasalan.is mynd/Stefán
Dekkjasalan í Hafnarfirði er eina umboðssalan hérlendis með notuð dekk og felgur. Í gegnum tíðina hefur mikið magn af dekkjum og felgum safnast saman hjá fólki í geymslum og bílskúrum um allt land. Síðustu tvö árin hefur Dekkjasalan starfrækt umboðssölu þar sem fólk getur komið með dekkin og felgurnar, gert umboðssölusamning og starfsmenn sjá um söluna.

Andvirði vörunnar er svo lagt inn á reikning söluaðilans að frádregnum sölulaunum. Valdimar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Dekkjasölunnar, segir þetta fyrirkomulag spara mikinn tíma og vinnu fyrir bæði seljendur og kaupendur.

„Um leið aukast líkur á að vörurnar seljist og segja má að kaupendur séu mun betur tryggðir fyrir því að fá þær vörur í hendurnar sem þeir leita að, þegar horft er til gæða og verðs."



Allar vörur yfirfarnar

Hann segir starfsmenn Dekkjasölunnar leggja mikla áherslu á að fara vel yfir þær vörur sem berast í hús og að hafa allar lýsingar á heimasíðunni réttar. ,,Þannig sjáum við til þess að varan standist væntingar, sé örugg og í lagi," segir Valdimar.

Hann segir allar felgur yfirfarnar og dekkin líka og þau mæld og verðlögð í samræmi við gæði. Felgurnar eru allar settar á vél þar sem yfirfarið er hvort þær séu skakkar eða á þeim aðrir áverkar sem gera þær ósöluhæfar. Þegar þessu ferli er lokið eru teknar myndir af vörunni og hún sett inn á heimasíðu fyrirtækisins, dekkjasalan.is. Þar er hægt að skoða allar vörur og nánari lýsingar á þeim, til dæmis gerð, tegund, verð, dýpt munsturs og fleira.



Vefurinn í stöðugri uppfærslu

Valdimar segir mörg dæmi um að nýleg og góð vara sé í umboðssölu hjá þeim á mjög hagstæðu verði. Fyrsta skrefið við hagkvæm dekkjakaup ætti því að vera að setja sig í samband við Dekkjasöluna. Fyrirtækið býður einnig upp á ný dekk í flestum stærðum og gerðum á samkeppnishæfu verði. Heimasíða Dekkjasölunnar er uppfærð reglulega með nýjum vörum. Það þýðir að á hverjum morgni eru allar vörur til hjá Dekkjasölunni sem eru auglýstar á heimasíðunni.

Vöruhús Dekkjasölunnar er að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði og er opið frá kl. 8.00-18.00 virka daga og frá 10.00-16.00 á laugardögum. Síminn er 587-3757. Einnig er hægt að hafa samband gegnum tölvupóst á netfanginu dekkjasalan@dekkjasalan.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×