Lífið

Ráðherrar rekast á

Ráðherrabílar fyrir utan stjórnarráðið.
Ráðherrabílar fyrir utan stjórnarráðið. Mynd/Anton
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur líklega verið að flýta sér aðeins um of á fund ríkisstjórnarinnar í gærmorgun.

Hann gætti ekki betur að sér en svo þegar hann kom akandi inn á bílaplanið fyrir utan stjórnarráðshúsið á svarta BMW-ráðuneytisjeppanum að hann lenti í árekstri við rauðan KIA-jeppling.

Sá er í eigu Oddnýjar Harðardóttur, samflokkskonu hans og kollega í ríkisstjórn Íslands. Ráðherrarnir tveir tóku samstuðinu af æðruleysi, enda sá ekki mikið á bílunum og enn minna á ökumönnunum. -sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×