Lífið

Prometheus kynnt í París

Leikkonan Charlize Theron var í bláum kjól og var ófeimin við að stilla sér upp fyrir framan myndavélarnar.
Leikkonan Charlize Theron var í bláum kjól og var ófeimin við að stilla sér upp fyrir framan myndavélarnar.
Aðstandendur kvikmyndarinnar Prometheus fóru til Parísar á dögunum þar sem þeir kynntu myndina fyrir fjölmiðlafólki. Myndarinnar hefur verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu en hún er ekki frumsýnd fyrr en í byrjun júlí. Íslendingar bíða margir hverjir spenntir en hluti af tökunum fór fram hér á landi, meðal annars við Dettifoss.

Leikaranir Charlize Theron, Michael Fassbender og Noomi Rapace mættu til leiks hýr á brá annað en leikstjórinn Ridley Scott sem gaf ljósmyndurum alvarlegri svip. Mikið var rætt um klæðnað Theron og Rapace en blár kjóll Theron þótti skyggja á hvít jakkaföt sænsku leikkonunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×