Lífið

Charlize orðin sérfræðingur í bleium

Charlize Theron kveðst sérfróð um bleiuskipti.
Charlize Theron kveðst sérfróð um bleiuskipti. nordicphotos/getty
Leikkonan Charlize Theron segist vera orðin sérfróð um bleiuskipti eftir að hún eignaðist son sinn Jackson.

„Ég elska bleiuskipti, ég lýg því ekki. Og ég er orðin svo góð í þeim að ég gæti gert það sofandi. Ég hef þurft að kaupa bleiur í ólíkum löndum, því Jackson er á kynningarferðalagi með mér, og nú kann ég að skipta á japönskum bleium, spænskum, enskum og þýskum bleium. Bleiur eru svolítið ólíkar á milli landa og ég er orðin sérfróð um þær allar," sagði leikkonan um hið nýja hlutverk sitt sem móðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.