Lífið

Keppti í sænskum þætti

Linda Ósk Valdimarsdóttir, dansari, kom fram í hæfileikakeppninni Rampljuset sem sýnd er á SVT.
Linda Ósk Valdimarsdóttir, dansari, kom fram í hæfileikakeppninni Rampljuset sem sýnd er á SVT.
Dansarinn Linda Ósk Valdimarsdóttir var stödd í Svíþjóð fyrir helgi þar sem hún var við upptökur á sænska sjónvarpsþættinum Rampljuset. Þættirnir njóta mikilla vinsælda meðal sænskra ungmenna og hafa töluvert áhorf.

Linda Ósk er eigandi dansskólans Rebel Dance Studio og dansar að auki með Rebel-dansflokknum. Hún segir framleiðendur Rampljuset hafa séð dansmyndbönd hennar á Netinu og í kjölfarið fengið hana til að koma fram í þáttunum sem sýndir verða í ágúst. Þættirnir eru hæfileikakeppni fyrir börn og unglinga í anda X-Factor þáttanna og eru sýndir í sænska ríkissjónvarpinu.

„Frænka mín benti konu að nafni Guðrún Hauksdóttir á mig, en hún sér einmitt um að fá fólk í þættina. Það eru fjögur atriði sem keppa í hverjum þætti og ég keppti á móti töframanni, beatboxara og tvíburum sem sýndu listir á einhjóli," segir Linda Ósk sem hreppti annað sætið. Óvanalegt er að keppendur í Rampljuset komi utan Svíþjóðar enda er þátturinn ætlaður sænskum börnum og ungmennum. Þátturinn fer að sjálfsögðu fram á sænsku og þurfti Linda Ósk að gera sér upp sænskukunnáttu á meðan hún hlýddi á umsagnir dómaranna.

„Ég brosti bara og kinkaði kolli á meðan dómararnir töluðu við mig enda skildi ég ekki orð. Þau þýddu allt svo fyrir mig eftir tökurnar."

Linda Ósk stundar helst street-dans en einnig djassdans, nútímadans og hiphop og hélt nokkur dansnámskeið í Malmö á meðan á dvöl hennar stóð. Aðsóknin á námskeiðin var svo góð að Linda hyggst fara aftur út í haust og halda fleiri. „Þetta verður vonandi ágætur stökkpallur fyrir mig inn í danssenuna úti og það var frábært að hafa getað nýtt tækifærið og komið Dance Rebel út fyrir landsteinana. Mér hafa einnig boðist nokkur starfstilboð í Svíþjóð sem ég er að íhuga og það er ekki útilokað að ég flytji þangað í haust," segir Linda Ósk að lokum.

Rebel Dance Studio heldur námskeið hér á landi í næstu viku. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu dansskólans rebeldancestudio.is. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.