Tónlist

Skytturnar með nýtt rapp

Hipphopp verður í hávegum haft á Þýska barnum um helgina á hátíðinni Yolo. Skytturnar eru meðal rapphljómsveita en tónleikar þeirra eru hluti af endurkomu sveitarinnar.

„Það má búast við miklu af nýju efni frá okkur á næstu mánuðum," segir Hlynur Ingólfsson einn meðlima Skyttanna. Sveitin stefnir á útgáfu nýrra laga eftir margra ára hlé og verða nokkur þeirra flutt ásamt eldra rappi annað kvöld. „Við munum taka lög eins og Geri það sem ég vil, sem naut mikilla vinsælda hér um árið, og Lognið á undan storminum."

Eftirfarandi lög eru að finna á breiðskífunni Illgresið sem kom út árið 2003 en sama ár voru þeir valdir bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Tónleikar sveitarinnar á hátíðinni eru þeir fyrstu í Reykjavík síðan í byrjun desember á síðasta ári. „Við komum þá fram á Prikinu og það var troðfullt enda lítill staður. Við höfum síðan spilað fjórum sinnum á Akureyri upp á síðkastið til dæmis á Bíladögum. Þar fengum við þrusugóð viðbrögð en þá var maður auðvitað á heimavelli. Við vonum bara að þetta verði eins gott á svona stórum stað í bænum," segir Hlynur en Skytturnar koma frá Akureyri.

Hátíðin stendur yfir í kvöld og á morgun og hefst dagskráin að miðnætti báða dagana. Margir helstu rapparar landsins koma fram ásamt ýmsum plötusnúðum en meðal þeirra eru Úlfur Úlfur, Gabríel ásamt Opee, Gísli Pálmi, Emmsjé Gauti, Shades of Reykjavík og ATH, sem samanstendur af Didda Fel og 7berg.- hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.