Lífið

Fær 4 milljónir í meðlag á mánuði

Fær meðlag
Katie Holmes fær um fjórar milljónir króna í meðlag á mánuði.
nordicphotos/getty
Fær meðlag Katie Holmes fær um fjórar milljónir króna í meðlag á mánuði. nordicphotos/getty
Katie Holmes fær 48.388.000 krónur á ári í meðlag frá fyrrverandi eiginmanni sínum, leikaranum Tom Cruise.

Holmes skrifaði undir kaupmála áður en hún gekk að eiga Cruise árið 2006 og á því ekki rétt á að fá hluta af eignum hans, en leikarinn er metinn upp á 30 milljarða króna.

Cruise ber þó skylda til að borga meðlag með dóttur þeirra, Suri Cruise, þar til hún nær 18 ára aldri. Holmes fær um fjórar milljónir í meðlag á mánuði næstu árin.

Cruise á tvö önnur börn, Isabellu og Connor, sem hann ættleiddi ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Nicole Kidman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×