Lífið

Uppgötvaði Rihönnu og Justin Bieber

L.A. Reid
L.A. Reid
L.A. Reid er stórt nafn í tónlistarbransanum vestanhafs sem útgáfustjóri og lagahöfundur. Ekki er nema ár síðan hann tók við stjórn hjá Epic Records en áður stjórnaði hann plötuútgáfunum LaFace Records og The Island Def Jam Music Group.

Með plötusamningnum er Jón Ragnar kominn í góðan hóp með góðu fólki, en L.A. Reid á þátt í frægð og frama Rihönnu, Justins Bieber, Ushers, Avril Lavigne, Mariuh Carey, Kanye West, Pink, Toni Braxton, TLC, OutKast og Dido.

L.A. Reid hefur unnið til þriggja Grammy-verðlauna. Undanfarið hefur hann vakið athygli fyrir vasklega framgöngu sína í raunveruleikaþáttunum X Factor en í ár situr L.A. Reid í dómarasætinu ásamt Simon Cowell, Britney Spears og Demi Lovato. Sigurlaunin í X Factor-keppninni eru plötusamningur hjá Epic Records-útgáfunni, en Jón Ragnar er einmitt mikill aðdáandi raunveruleikaþáttanna og auðvitað tónlistarmógúlsins fræga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.