Retrobot er selfysskur kvartett ungra pilta sem vöktu talsverða athygli á árinu þegar þeir sigruðu Músíktilraunir. Þrátt fyrir að rekja uppruna sinn til Selfoss spilar Retrobot ekki sveitaballatónlist í neinum hefðbundnum skilningi – þótt sveitin hafi reyndar spilað á 800 Bar. Skömmu síðar brann 800 Bar.
Hvort það hafi eitthvað haft með tónleika Retrobot að gera skal ósagt látið. Í öllu falli spilar hljómsveitin elektró-skotið indí-popp, kannski ekki ósvipað því sem vinsælar hljómsveitir á borð við Cut Copy og Chromatics hafa spilað með góðum árangri. Blackout er fyrsta plata sveitarinnar en hér er um sex laga stuttskífu (EP) að ræða. Á plötunni er unnið mikið með nostalgíu frá níunda áratugnum og sækadelískum gítartónum. Sums staðar má jafnvel greina hiphop-áhrif úr Outkast-átt (Electric Wizard) og á lokalaginu, "Blackout," er engu líkara en Tony Hadley úr Spandau Ballet sé á bak við míkrafóninn.
Allt þetta er mjög jákvætt fyrir þessa pilta, þó ekki nema bara til að auka á fjölbreytni tónlistarlífs við Ölfusá. Eins og áður segir er hljómsveitin ung að árum, meðlimirnir rétt að klára stúdentspróf. Þeir virðast hafa góð tök á því sem þeir eru að gera sé miðað við þessa stuttskífu og það verður spennandi að sjá hvernig Retrobot á eftir að standa sig þegar kemur að breiðskífuútgáfu. Hún hefur að minnsta kosti burði til að brenna þakið af húsinu, svo mikið er víst.
Niðurstaða: Fínasta frumraun hjá nýjustu útflutningsafurð Árborgar.
