Lífið

Bobbi er skynsöm

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni sem lést fyrr á árinu.nordicphotos/Getty
Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni sem lést fyrr á árinu.nordicphotos/Getty
Bobby Brown, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Whitney Houston, telur að dóttir þeirra, Bobbi Kristina, sé nógu skynsöm til að feta ekki í fótspor foreldra sinna hvað vímuefnanotkun varðar. Einhverjir hafa haldið því fram að hún noti ólögleg vímuefni og hefur hún þurft að neita því opinberlega.

„Allir unglingar ganga í gegnum hluti sem foreldrar þeirra vilja ekki að þeir gangi í gegnum. En þeir þroskast í burtu frá því og það hefur stelpan mín gert. Ég trúi því að hún sé nógu skynsöm til að feta ekki sömu slóð og ég eða móðir hennar,“ sagði Brown, sem er mjög stoltur af dóttur sinni.

Hann hefur einnig borið til baka fregnir um að hún ætli að losa sig við eftirnafnið Brown. „Hún fer ekkert að breyta nafninu sínu. Hún verður alltaf þekkt sem Bobbi Kristina Brown og það er ekkert sem fær því breytt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.