„Þetta er fyrsta I AM verslunin á Íslandi en I AM starfrækir 150 verslanir um allan heim," segir Laufey Stefánsdóttir, eigandi nýrrar og glæsilegrar verslunar sem opnuð var með pompi og prakt í Kringlunni gær.
I AM býður skartgripi og fylgihluti sem Laufey segir hafa vantað inn í íslenska verslunarflóru.
„I AM er fremsta merkið á markaðnum í dag og fullnægir öllum þörfum í tískuskarti. Við erum með rétta liti á réttum tíma en hönnuðir I AM-keðjunnar fylgja nýjustu tískustraumum í öllu sem þeir gera og sækja tískuvikur um allan heim áður en þeir hanna sínar vörur. I AM er sérhönnuð verslun fyrir nútímakonur sem fylgjast vel með straumum og stefnum, elska að versla og vilja hafa heildarútlitið í lagi," segir Laufey.
Nýjar vörur berast vikulega í verslunina og nýtt þema aðra hverja viku. Viðskiptavinir geta því auðveldlega fundið það rétta fyrir ólíkustu tækifæri en auk skartgripa I AM fæst úrval fylgihluta undir nafninu YSTRDY, svo sem töskur, veski, hattar og klútar, sólgleraugu og hárskraut. Þá koma árstíðabundnar vörur, bikiní og sandalar á sumrin og húfur, hanskar og treflar á veturna.
„Í I AM er auðvelt að fá innblástur. Breytt vöruúrval og stöðugar nýjungar gera hverri konu auðvelt að endurnýja útlitið reglulega en við fáum vörur í hverri einustu viku, allt árið um kring. Ekki skemmir síðan fyrir að mjög takmarkað magn kemur af hverri hönnun og allt á mjög sanngjörnu verði. Við fáum alltaf rétta „trendið" tímanlega enda finnast verslanir I AM í öllum helstu stórborgum heims eins og New York, Barcelona, Berlín og París, þar sem kröfur um hátísku eru miklar. Gæðakröfur I AM eru háar þó svo að verðið sé mjög sanngjarnt. Til dæmis er allt silfur ósvikið og nikkelfrítt," útskýrir Laufey.
Verslunin er á fyrstu hæð Kringlunnar rétt hjá aðalinngangi.
