Leiðbeiningar um rjúpnaveiði umhverfis Þingvelli 28. október 2012 08:30 Mörk þjóðgarðsins á Þingvölum, Mynd / Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur sent frá sér leiðbeiningar vegna rjúpnaveiði umhverfis þjóðgarðinn, Undirstrikað er að skotveiði er ekki leyfð í friðlandinu sjálfu. "Senn líður að fyrstu rjúpnaveiðihelginni. Rjúpnaveiði er ávallt mikið stunduð umhverfis þjóðgarðinn á Þingvöllum. Stöðug umferð veiðimanna er í gegnum þjóðgarðinn á rjúpnadögum til að komast á veiðislóð bæði til norðurs á Uxahryggi og Kaldadal en einnig austur fyrir þjóðgarðinn. Starfsfólk þjóðgarðsins sinnir eftirliti með þjóðgarðinum og fer reglulega um þjóðgarðinn en lögreglan hefur einnig farið nokkrum sinnum um svæðið og sinnir eftirliti. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum starfar á grundvelli laga nr. 47/2004 Mörk þjóðgarðsins skv. 1.gr laganna eru sem hér segir: Að sunnan eru mörkin um línu sem dregin er úr landamerkjum jarðanna Arnarfells og Mjóaness á Langatanga, vestur yfir vatnið og í Grjótnes sem er á landamerkjum jarðanna Skálabrekku og Kárastaða. Þaðan ráða landamerki þeirra jarða að landamerkjum Selkots og síðan landamerki Selkots og Kárastaða að sýslumörkum Árnessýslu og Kjósarsýslu á Há-Kili. Þaðan ráða sýslumörk til norðausturs til upptaka Öxarár við Myrkavatn og í hátind Háusúlu og þaðan bein stefna til austurs í efsta tind Gatfells Þaðan liggja mörkin til suðurs í Hrafnabjörg og með austur- og suðurmörkum jarðarinnar Gjábakka og með austurmörkum jarðarinnar Arnarfells í Langatanga. Samkvæmt 11.grein reglugerðar nr. 848/2005 um þjóðgarðinn á Þingvöllum er öll skotveiði bönnuð innan marka þjóðgarðsins. Almennt má segja: Til að komast á veiðislóð norðan við þjóðgarðinn þarf að fara nokkuð norður fyrir Sandkluftavatn. Allt svæðið vestan Almannagjár, Skógarhólar, Gagnheiði, Svartagil, hlíðar Ármannsfells, Botnssúlna og Öxarárdalur er innan þjóðgarðs og því ekki veiðisvæði. Lokað er fyrir akstur um Öxarárdal upp að Leggjarbrjót. Fyrir austan þjóðgarð þarf að fara alveg austur að jeppaslóðanum upp að Hrafnabjörgum við Dímon/Tintron. Til að komast upp að Tintron, Bragabót og austur fyrir Hrafnabjörg og austur á Laugarvatnsvelli er bent á nýja tengingu við Kringlumýri og á Laugarvatnsvöllum miðja leið yfir á Laugarvatn á hinum nýja Lyngdalsheiðarvegi. Einnig er hægt að beygja inn á gamla Gjábakkaveginn við Gjábakka en möl var lögð ofan í vegstæðið eftir breytingar eftir að nýr Lyngdalsheiðarvegur var opnaður. Vinsamlegast athugið að girðingin austan við Gjábakka eru EKKI mörk þjóðgarðsins. Sunnan við mörkin að austanverðu eru einkalönd þar sem rjúpnaveiði er bönnuð þannig að ekki er hægt að ganga til suðurs til veiða." Á thingvellir.is má nálgast hnitsett kort til að glöggva sig betur á mörkum þjóðgarðsins. gar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði 206 laxar á svæðum SVFR í Soginu Veiði 176 laxa holl í Haffjarðará Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði Sportveiðiblaðið er komið út Veiði Teljaraniðurstöður úr Gljúfurá Veiði