Tryggvi Sveinn Bjarnason í Fram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2013 16:20 Tryggvi Sveinn Bjarnason. Mynd/Ernir
Framarar styrktu hjá sér vörnina í dag þegar miðvörðurinn Tryggvi Sveinn Bjarnason skrifaði undir þriggja ára samning við Safamýrarliðið. Tryggvi verður langreynslumesti nýliðinn í Framliðinu í Pepsi-deild karla í fótbolta næsta sumar. Tryggvi er þrítugur og hefur leikið 203 leiki í deild og bikar með KR, ÍBV og Stjörnunni og skorað í þeim 17 mörk. Það hafði áður komið fram að hann yrði ekki áfram með Stjörnunni. Tryggvi er uppalinn KR-ingur og sonur Bjarna Friðrikssonar, bronsverðlaunahafa í júdó á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984 en Tryggvi var þá rúmlega eins árs. Það er ljóst að Tryggvi Sveinn kemur með mikla reynslu inn í ungt lið Fram, hann er stór og stæðilegur miðvörður sem skorar reglulega. Fram hefur fengið mikið af ungum og óþekktum leikmönnum að undanförnu og því munar mikið um Tryggva. Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram er mjög ánægður með liðstyrkinn. „Tryggvi er öflugur leikmaður og mikill karakter sem verður án efa einn af burðarásunum í okkar liði," sagði Bjarni í fréttatilkynningu frá Fram.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira