Tíska og hönnun

Líður vel á Indlandi

Ásgerður Ottesen skrifar
Heba Björg Hallgrímsdóttir vinnur og starfar innan tískuiðnaðarins á Indlandi.
Heba Björg Hallgrímsdóttir vinnur og starfar innan tískuiðnaðarins á Indlandi.
„Eins og er, er ég að framleiða fyrir nokkra aðila á Íslandi, til að mynda fatamerkið Helicopter og E-label ásamt nokkrum aðilum í London. Þetta hefur svona hægt og rólega verið að vinda upp á sig og alltaf fleiri að hafa samband það er ekki hlaupið að því að finna góða framleiðendur,“ segir Heba Björg Hallgrímsdóttir sem flutti til Indlands í byrjun árs.

„Ég var svo heppin að kynnast strák í borginni Pondycherry hér Indlandi, sem hafði verið að vinna við framleiðslu í Delhi síðastliðin tuttugu ár. Ég flutti með allt mitt hafurtask til Delhi og hef verið heppin að fá frábær viðskiptatengsl þar. Nú starfa ég við að finna verkmiðjur og efni fyrir íslenska fatahönnuði og sé einnig um að fylgja framleiðsluferlinu eftir.“

Hebu líður mjög vel á Indlandi en segir að það sé ekki alltaf auðvelt að vera kona þar. „Maður er náttúrulega vanur því að geta farið ferða sinna hvar og hvenær sem er án þess að vera í fylgd karlmans, sem er ekki alltaf í boði þar sem ég bý,“ segir Heba, sem er þó ekki á heimleið strax. „Ég stefni á að vera hér fram að jólum,“ segir hún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×