Gætu verið dæmdir í allt að tveggja ára fangelsi 2. apríl 2013 15:46 Markús Máni Michaelsson.
Fjórmenningarnir sem eru ákærðir fyrir meiriháttar brot gegn lögum um gjaldeyrisviðskipti, geta átt von á allt að tveggja ára fangelsi verði þeir fundnir sekir um að hafa brotið lögin. Eins og Vísir og Stöð 2 greindu frá um helgina eru þeir Markús Máni Michaelsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, Karl Löve Jóhannsson, Gísli Reynisson og Ólafur Sigmundsson ákærðir í málinu sem er oft kennt við Aserta. Í ákærunni segir að þeir hafi allir haft þekkingu og reynslu af gjaldeyrisviðskiptum, einnig eftir að fjármagnshöft voru sett á eftir að gengi íslensku krónunnar hrundið árið 2008. Fjórmenningarnir eru ákærðir fyrir að hafa keypt íslenskar krónur á markaði utan Íslands, svokölluðum aflandsmarkaði, og flytja þær inn til landsins þar sem mun meira fæst fyrir krónurnar. Þetta gerðu þeir þrátt fyrir að fáeinum mánuðum áður hefðu íslensk stjórnvöld og Seðlabankinn sett reglur um höft á fjármagnsflutningum til þess að hindra frekara hrun íslensku krónunnar. Í ákærunni segir að umrædd gjaldeyrisviðskipti nemi alls um 14,3 milljörðum íslenskra króna og varði 748 peningamillifærslur. Þar sem brot á lögunum um gjaldeyrisviðskipti urðu ekki refsiverð fyrr en sumarið 2009, telst einungis um tveir þriðju hluti brotanna refsiverður verknaður. Heildarávinningur ákærðu af viðskiptunum munu hafa numið að minnsta kosti 656 milljónum króna og segir í ákærunni að sakargögn bendi ekki til annars en að ávinningur hafi skipst eða átt að skiptast jafnt á milli hinna ákærðu. Því hafi hver átt að fá í sinn hlut 164 milljónir króna. Í ákærunni segir að óvíst sé, að stærstu leyti, um afdrif þess ávinnings sem ákærðu hafi haft af háttsemi sinni. Fyrirliggjandi sakargögn bendi ekki til þess að ávinningurinn hafi að verulegu marki verið fluttur til Íslands. Þau sýni jafnframt að ákærðu hafi að minnst kosti gert ráðstafanir til þess að láta ávinninginn renna til aflandsfélags eða aflandsfélaga í endanlegri eigu og undir raunverulegri stjórn þeirra. Meðal annars hafi sakborningar í þessu skyni látið stofna félag á Kýpur.
Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Annað tilboð borist í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira