Sérfræðingar í virðisaukandi vefnotkun 18. janúar 2013 06:00 Björn Jóhannsson og Jón Trausti Snorrason hjálpa fyrirtækjum að móta stefnu sína og búa til áætlanir.
Allra Átta er rótgróið fyrirtæki sem hefur frá upphafi lagt mikinn metnað í hönnun og þróun á framsæknum og notendavænum vefsíðulausnum. Fyrirtækið notar nýjustu aðferðir til að hjálpa fyrirtækjum að markaðssetja vörur og þjónustu í gegnum netið. Jón Trausti Snorrason og Björn Jóhannsson segja góða þarfagreiningu og stefnumótun skipta miklu máli þegar notendavænt viðmót vefs er hannað. "Við hjálpum fyrirtækjum að móta stefnu sína og búa til áætlanir fyrir hvert tímabil sem ná gjarnan yfir eitt eða tvö ár,“ segir Jón Trausti. "Stefnan er mótuð, þarfirnar greindar og ákveðnir mælikvarðar búnir til og markmið sett. Það er eitt sem fyrirtæki klikka gjarnan á, að setja sér skýr markmið. Ef þú ert ekki með markmið getur þú auðvitað ekki náð þeim.“ "Við aðstoðum fyrirtæki við að nýta fjármuni eins vel og hægt er í markaðssetningu á netinu,“ segir Björn. "Okkar markmið er alltaf að styrkja ímynd viðskiptavina. Það er einnig mikilvægt að fyrirtæki fái sem flestar heimsóknir inn á sín vefsvæði, og það er enn þá mikilvægara að heimsóknirnar verði að viðskiptum. Leitarorðagreining leggur grunn að vefsíðu sem eykur viðskipti Björn segir að með Google-leitarvélabestun sé mögulegt að fjölga heimsóknum á vefsíðuna. "Hún skiptir öllu máli. Leitarorðagreining og leitarvélavæn textaskrif leggja grunn að vefsíðu sem Google á auðvelt með að finna. Þetta er í raun þríþætt: Það þarf að komast að því hvaða orð og frasa markhópurinn notar til að finna þá vöru og þjónustu sem hann leitar að. Síðan þarf að nota þessi orð og frasa sem mest á heimasíðunni, til dæmis í fyrirsögn, texta og á öðrum stöðum sem skipta máli. Góður hvati til aðgerða getur aukið viðskipti Jón Trausti segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á hvata til aðgerða á vefnum. "Það er allt of algengt að koma inn á heimasíðu fyrirtækis þar sem óljóst er hvað eigi að gera næst. Dæmi um hvata til aðgerða eru: Kaupa, Panta símtal, Bóka herbergi, Panta tíma og Póstlistaskráning. Ég held að mörg fyrirtæki séu að missa af gríðarlegum tækifærum með því að hafa óljósa hvata til aðgerða (HTA) á vefnum.“ Hann segir að hér skipti miklu máli að halda svokölluðum flóttastuðli sem lægstum en þar vísar hann í þá sem koma inn á vefinn og loka honum án þess að smella á neina tengla. "Hvatar þurfa ekki að vera flóknir en það þarf að vera skýrt hvað notandinn á að gera þegar hann kemur inn á vefinn. Að sjálfsögðu þurfa hvatarnir að endurspegla starfsemi fyrirtækisins og vera í takt við þær boðleiðir sem fyrirtækið vill nota.“ Vefur þróaður út frá vöktun og greiningu Regluleg vöktun vefsvæðis er mikilvæg, að sögn Björns. Hann segir of algengt að fyrirtæki setji upp vef með tilheyrandi vinnu og kostnaði og líti svo á að vinnan sé búin. "Þarna er verið að kasta miklum tækifærum á glæ. Við nýtum Google Analytics til að greina hegðun og heimsóknir á síðunni. Hversu margar heimsóknir, hvar er smellt, hvað er mest lesið o.fl. Við getum einnig séð með hvaða leitarorðum menn koma inn á síðuna. Þannig má þróa vefinn jafnt og þétt. Raundæmi Þeir nefna sem dæmi einn viðskiptavin úr ferðaþjónustunni. "Fyrst var haldinn kynningarfundur þar sem við fengum innsýn inn í rekstrar- og markaðsumhverfi fyrirtækisins. Næst var vefsvæði fyrirtækisins árangursvaktað með Google Analytics og helstu leitarorð greind. Gerð var ítarleg samkeppni- og stöðugreining. Í kjölfarið var haldinn fjögurra tíma stefnumótunarfundur þar sem settir voru mælikvarðar, styrkleikar og veikleikar skoðaðir auk þess sem vöruframboð og þjónusta voru metin og sérstaðan dregin fram. Eftir fundinn lá fyrir markaðs- og aðgerðaáætlun næstu tveggja ára. Í dag er verið að vinna eftir þessari aðgerðaáætlun og fer hún þannig fram að verkefnið er unnið í nokkrum skrefum og árangurinn mældur jafn óðum.“
Mest lesið „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Atvinnulíf Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Viðskipti innlent Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira