Bíó og sjónvarp

Íslenskt "gúmmelaði“ á kvikmyndahátíð

Sara McMahon skrifar
Fimm kvikmyndir verða sýndar í flokknum Ísland í brennidepli á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, í lok mánaðarins.

„Hátíðin er bæði ætluð alþjóðlegum og íslenskum kvikmyndum. Í þessum flokki eru íslenskar myndir og myndir sem varða Ísland á einhvern hátt, til dæmis myndir sem gerast á Íslandi en eru eftir erlenda leikstjóra. Í ár verður alls konar „gúmmelaði“ í boði, meðal annars heimildarmyndin Aska sem fékk verðlaun sem besta heimildarmyndin á Skjaldborg, og stuttmyndin Hvalfjörður sem hlaut verðlaun á hátíðinni í Cannes í ár,“ segir Gunnar Hjálmarsson, starfsmaður kynningardeildar RIFF.

Hátíðin fer fram 26. september til 6. október.

SVONA ER SANLITUN THIS IS SANLITUN

Leikstjóri: Robert Ingi Douglas (ICE / IRE / CHI) 2013

Róbert Ingi Douglas snýr aftur með grínmynd sem gerist í Kína. Gary er í Peking til að meika það. Eftir að honum mistekst að vekja hrifningu kínverskra fjárfesta fer hann að kenna ensku og soga í sig lífsspeki Franks, hins óhæfa læriföður. Myndin er opnunarmynd RIFF.

Leikarinn Carlos Ottery leikur Gary. Hann flutti til Kína árið 2008 og starfaði sem enskukennari í nokkur ár. Hann stofnaði síðar uppistandsklúbbinn Comedy Club China í Peking og nýtur staðurinn mikilla vinsælda. Hlutverk Gary er frumraun hans á sviði leiklistar.

ASKA ASH

Leikstjóri: Herbert Sveinbjörnsson (ICE) 2013

Aska er heimildarmynd um afleiðingar eldgosanna í Eyjafjallajökli á árunum 2010 til 2011. Hún segir sögu þriggja fjölskyldna sem búa í nágrenni við jökulinn og stórbrotin áhrif eldhræringanna á líf þeirra. Myndin er verðlaunamynd Skjaldborgarhátíðarinnar.

Í febrúar fyrra sagði Fréttablaðið frá þvíað Herbert Sveinbjörnsson, leikstjóri myndarinnar, væri önnum kafinn við að framleiða íslenskan raunveruleikaþátt þar sem fylgst yrði með lífi fjögurra íslenskra ungmenna.

NAKIN LULU LULU IN THE NUDE

Leikstjóri:Sólveig Anspach (FRA) 2013

Í kjölfar þess að starfsviðtal fer á versta veg ákveður Lulu að yfirgefa eiginmann sinn og þrjú börn. Að vera slík ævintýrakona er hins vegar hægara sagt en gert.

Leikkonan Karin Viard, sem fer með titilhlutverkið, er þekkt leikkona í föðurlandi sínu, Frakklandi. Hún er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í myndunum Delicatessen, Polisse og Time Out. Hún sat í dómnefnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2003.

DAGAR GRÁMANS DAYS OF GRAY

Leikstjóri: Ani Simon-Kennedy (ICE / USA) 2012

Days of Gray er tímalaus uppvaxtarsaga ungs drengs. Myndin er algjörlega laus við samtöl og tónlistin við myndina er frumsamin af íslensku hljómsveitinni Hjaltalín.

Leikstjóri myndarinnar, Ani Simon-Kennedy, var lærlingur tökumanns kvikmyndarinnar Midnight in Paris eftir Woody Allen. Leikkonan Diljá Valsdóttir, sem leikur ungu stúlkuna í Dögum grámans, fer einnig með hlutverk í myndinni Málmhaus í leikstjórn Ragnars Bragasonar.

BÚÐIN THE SHOP

Leikstjóri: Árni Gunnarsson (ICE) 2013

Sá sem kemur inn í Verslun H. Júlíussonar á Sauðárkróki ferðast í huganum áratugi aftur í tímann. Í Búðinni kynnumst við Bjarna og Dísu konu hans, fjölskyldu þeirra og vinum.

Árni Gunnarsson var tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir heimildarmynd ársins árið 2010 fyrir myndina Kraftur-Síðasti spretturinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×