Harmageddon

„Ef þú hefur ekki stjórn á sjálfum þér þá getur þú ekki stjórnað stórum vinnustað“

Frosti Logason skrifar
Hallgrímur Helgason mætti í útvarpsþáttinn Harmageddon í morgun til þess að ræða um stöðu Ríkisútvarpsins.

Talið barst að Páli Magnússyni og hvort hann væri starfi sínu vaxinn í stofnuninni.

„Ég er ekki alveg viss um að það eigi að reka hann en mér fannst hann nú eiginlega bara reka sjálfan sig þegar hann klikkaði þarna...“

og átti Hallgrímur þá við stundina er Páll öskraði ókvæðis orðum að Helga Seljan eftir tilfinningaþrunginn starfsmannafund þar sem uppsagnir voru ræddar.  

„Hann missti algerlega virðingu og í rauninni var engin innistæða eftir lengur hjá honum.“

Hlustið á allt viðtalið hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.