Körfubolti

Sigur hjá Drekum og Höfrungum | Hlynur frábær

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hlynur Bæringsson
Hlynur Bæringsson Mynd/Stefán
Hlynur Bæringsson átti stórleik með liði Sundsvall Dragons sem vann 91-71 sigur á Solna Vikings í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Hlynur skoraði 20 stig, tók 14 fráköst og átti sex stoðsendingar. Landsliðsmaðurinn var sjóðheitur alls staðar á vellinum. Hann hitti úr sjö af níu skotum sínum fyrir innan þriggja stiga línuna og tveimur af fjórum fyrir utan hana.

Jakob Örn Sigurðarson stóð einnig vaktina með prýði hjá Drekunum með 14 stig .

Pavel Ermolinskij skoraði sjö stig, tók ellefu fráköst og átti tíu stoðsendingar í góðum sigri Norrköping Dolphins á Uppsala Basket 80-65.

Sundsvall er sem fyrr efst í deildinni. Liðið hefur 34 stig en Uppsala Basket og Borås Basket koma næst með 28 stig. Pavel og félagar deila fjórða sætinu með Solna Vikings og Södertälje Kings en Höfrungarnir eiga leik til góða á liðin fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×