Bílar

Verkfall í Belgíu skaðar Ford

Ford Mondeo er ein þeirra þriggja bílgerða sem smíðaðir eru í Genk
Ford Mondeo er ein þeirra þriggja bílgerða sem smíðaðir eru í Genk
Ekki hefur verið framleiddur einn einasti bíll í verksmiðjunni í 3 mánuði.

Áætlanir Ford að loka verksmiðju sinni í Genk í Belgíu á næsta ári leiddu til þess að starfsmenn hafa lagt niður vinnu í 3 mánuði og enginn bíll hefur komið frá verksmiðjunni frá því 24. október.

Í verksmiðjunni voru smíðaðir Ford Mondeo, S-Max og Galaxy. Ford hefur ekki ennþá tekist að semja við starfmennina og verkalýðsfélag þeirra og ítrekuð tilraun þeirra í síðustu viku bar engan árangur. Hamlar þetta verulega afhendingu á þessum bílgerðum.

Ford ætlar líka að loka verksmiðju sinni í Southampton í Bretlandi og með því fækkar starfsmönnum Fod um 6.200 starfmenn eða um 13% starfsmanna Ford í Evrópu.

Eru þetta viðbrögð Ford við minnkandi sölu bíla þeirra í álfunni og viðleitni þeirra til að stöðva viðvarandi tap fyrirtækisins þar. Stefnir í að Ford tapi 193 milljörðum króna árin 2012 og 2013 á rekstri sínum í álfunni. Ef allt væri eðlilegt í Genk væru þar framleiddir 1.000 bílar á dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×