Bílar

Tveir látnir í París-Dakar

Keppnin er löng og erfið og krefst mikið af ökumönnum
Keppnin er löng og erfið og krefst mikið af ökumönnum
Keppnin hefur kostað mörg mannslíf gegnum árin.

Nú stendur yfir þolaksturskeppnin sem kennd er við París-Dakar. Keppnin fer hinsvegar fram í Perú, Síle og Argentínu og fer árlega fram í byrjun árs.

Keppni þessi er afar hættuleg og hefur kostað marga lífið, keppendur, aðstoðarmenn sem og áhorfendur. Þetta ár ætlar ekki að vera nein undantekning frá því. Í fyrradag létust tveir þegar aðstoðarbíll lenti í árekstri við leigubíl og annar leigubíll valt mörgum sinnum við það að reyna að forðast áreksturinn.

Sjö slösuðust auk dauðsfallanna og eru þeir allir á sjúkrahúsi, mismikið slasaðir. Keppnin heldur áfram þrátt fyrir þessi áföll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×