Lífið

Fann loksins augnskugga sem endist

Ellý Ármanns skrifar
Söng- og leikkonan Íris Kristinsdóttir sem eignaðist tvíburadrengi í apríl í fyrra hefur nóg að gera þegar kemur að uppeldinu. Íris, sem er glæsileg kona, upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Bobby Brown Eyeliner gerir augun svo mikið fallegri og helst á allan daginn og fram á kvöld.

Kanebo púðurmeikið sem ég verð að eiga alltaf. Það gerir mann eitthvað svo "flawless" þegar maður er þreyttur eftir vökunótt.

AVEDA Hand Relief er sjúklega góður handáburður. Það jafnast ekkert á við að skríða upp í rúm og bera á sig handáburð fyrir svefninn. Svo ilmar hann líka svo vel.

Hýdrófíl rakakremið. Ég uppgötvaði það í þessu barnastússi. Þetta er langbesta andlitskrem sem ég hef notað. Engin aukaefni og gefur góðan raka.

Bobby Brown augnskuggar, Pastel Eye Shadow Pallette. Ég er búin að prufa margar týpur af augnskuggum og fann loks einhverja sem endast og haldast.

Íris Kristinsdóttir

Tengdar fréttir

Snyrtivörurnar sem Svala Björgvins notar

Söngkonan Svala Björgvins sem er búsett í Bandaríkjunum er stórglæsileg kona með áberandi fallega húð. Hún upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Eftir allt sukkið í desember þarf maður næringu fyrir húðina

"Eftir allt sukkið í desember í konfekti, mat, drykk og svefninn á hvolfi þarf maður næringu fyrir húðina. Ég ákvað að taka smá treat á þetta núna til að fríska mig aðeins við á nýju ári," segir Eva Dögg eigandi Tiska.is...

Snilld fyrir mömmur sem verða stundum þreyttar

Manúela Ósk Harðardóttir sem heldur meðal annars úti tískublogginu M-x-k.com upplýsir okkur um fimm vörur sem hún getur ekki verið án þegar kemur að húð- og hárumhirðu.

Notar krem stútfullt af andoxunarefnum

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og starfsmaður nýsköpunardeildar Matís er stórglæsileg kona sem hefur nóg að gera samhliða móðurhlutverkinu. Við forvitnuðumst hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega.

Ég elska varaliti og nota þá daglega

María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.