Tíska og hönnun

Litrík Cara Delevingne

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Breska ofurfyrirsætan Cara Delvingne hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn síðustu mánuði. Delvingne, sem er fædd árið 1992, gengur tískupallana fyrir helstu hönnuði og hefur prýtt mörg virtustu tískutímarit heims ásamt því sem einkalíf hennar er mikið í sviðsljósinu. Það er er því ljóst að við munum sjá mikið af fyrirsætunni ungu næstu árin.

Hér situr hún fyrir í nýjustu auglýsingaherferð DKNY. Myndirnar eru stórskemmtilegar og litríkar, en maðurinn á bak við linsuna er ljósmyndarinn Patrick Demarchelier.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×