Lífið

Dásamlegt dömuboð Bláa Lónsins

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Atli Kristjánsson
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands í gær þegar Bláa Lónið kynnti nýtt þörungakrem, Nourishing Rich Cream. Fjöldi glæsilegra kvenna kynntu sér nýju vöruna sem er 24 stunda nærandi krem sem hentar vel fyrir íslenskar aðstæður. Kremið veitir jafna og fallega áferð og hentar því vel undir farða auk þess sem það dregur fram ljóma húðarinnar.

Blue Lagoon þörungar sem þekktir eru fyrir virkni gegn öldrun húðarinnar eru lykilinnihaldsefni nýja andlitskremsins. Blue Lagoon þörungamaskinn sem settur var á markað á síðasta ári sló í gegn á meðal íslenskra kvenna og nýja þörungakremið er spennandi viðbót við vörulínuna sem byggir á virkum efnum Bláa Lónsins, kísil, steinefnum og þörungum.

Virk efni Bláa Lónsins veita sérstöðu á heimsvísu segir einn færasti sérfræðingur heims á sviði öldrunar húðarinnar.

Rannsóknirnar eru unnar í samvinnu við Professor Jean Krutmann, einn færasta sérfræðing heims á sviði öldrunar húðarinnar. Hann flutti erindi við kynninguna í gær.

Mikil þróun á sér stað í snyrtivörum er vinna gegn öldrun húðarinnar. Hæfni virkra efna til að vinna gegn öldrun húðarinnar er eitt það heitasta í snyrtivörurannsóknum í dag. Rannsóknaniðurstöður Bláa Lónsins á þessum vettvangi eru einstakar á heimsvísu.

Krutmann segir að einstök náttúruleg virk efni Bláa Lónsins veiti Blue Lagoon húðvörunum einstaka stöðu á markaði í dag og jafnframt mikla möguleika sé litið til nánustu framtíðar og þeirrar þróunar sem nú á sér stað í snyrtivöruheiminum.

Bláa Lónið.

Myndir/Atli Kristjánsson
Fjöldi kvenna mætti til að fræðast um nýja þörungakremið.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og dóttir hennar Erla Rún mættu í Öskju í gær.
Jean Krutmann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×