Bílar

Sparneytinn ofurbíll

Kemst í 300, er 3,5 sekúndur í hundraðið en eyðir 4 lítrum.

Það er ekki þekktur bílasmiður sem stendur að þessum sportbíl, sem ólíkt þeim flestum teigar ekki í sig eldsneytið heldur eyðir einungis 4 lítrum á hundraðið. Það er breska fyrirtækið Bristol sem smíðar þennan tvinnbíl sem kemst í hundraðið á 3,5 sekúndum og hefur 300 kílómetra hámarkshraða, þrátt fyrir svo litla eyðslu.

Afl bílsins er 362 hestöfl sem öll koma frá lithium ion rafgeymum sem hlaðnir eru af Rotary-vél. Bíllinn er fjórhjóladrifinn. Nokkuð er í fjöldaframleiðslu bílsins þar sem hann er enn í prófunum og frekari þróun. Ef allar ofannefndar tölur eru réttar og bíllinn verður ekki ofurdýr er þarna sannarlega spennandi kostur á ferð….mikilli ferð!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×