Bílar

Þessir ná mestu úr vélunum

Ariel Atom með fjórfalt afl Citroën C3 á hvern lítra sprengirýmis.

Æði misjafnt er hversu mörgum hestöflum bílaframleiðendur ná úr hverjum lítra sprengirýmis. Má til að mynda ná miklu afli úr háþrýstum vélum, eða með túrbínum og hverfablásurum, fleiri ventlum, öflugri beinni innspýtingu, góðu pústkerfi og svo mætti lengi telja. Top Gear blaðið tók saman hvaða fimm bílar sem kaupa má í dag skila mestu afli úr hverjum lítra sprengirýmis og hvaða fimm skila minnstu afli. Mestu afli skiluðu þessir fimm.

  1. Ariel Atom V8 – 166 hestöfl/lítra
  2. MacLaren 12C – 164 hestöfl/lítra
  3. Noble M600 – 146 hestöfl/lítra
  4. Audi TT RS – 145 hestöfl/lítra
  5. Nissan GT-R – 144 hestöfl/lítra
Þessi fimm skiluðu hinsvegar minnsta aflinu á hvern lítra sprengirýmis.

  1. Citroën C3 1,6 e-HDi – 44 hestöfl/lítra
  2. Mini Hatch 1,6 – 46 hestöfl/lítra
  3. Skoda Fabia 1,6 TDI - 46 hestöfl/lítra
  4. Ford Fiesta 1,25 – 48 hestöfl/lítra
  5. Peugeot 208 1,4 HDi – 48 hestöfl/lítra



Fleiri fréttir

Sjá meira


×