Bílar

Nýr keppnisbíll MacLaren

Ökumenn liðsins eru Jenson Button og Sergio Perez.

McLaren kynnti í síðustu viku nýjan Formúlu 1 keppnisbíl sinn sem þeir kalla MP4-28. Athygli vekur að bíllinn er svo til alveg eins í útliti og síðasti bíll og málaður alveg eins. En undir yfirborðinu leynast ýmsar breytingar og þrátt fyrir að síðasti bíll sé núverandi sigurvegari í Formúlu 1 eru breytingarnar miklar og metnaðarfullar.

Fjöðrunin að framan er "pull-rod"-gerðar eins og í keppnisbíl Ferrari, en öndvert við síðasta bíl MacLaren. Hliðar bílsins og botn hafa breyst nokkuð. MacLaren vonar að breyting verði á því, frá síðasta keppnistímabili, að fyrirtækið eigi hraðskreiðasta bílinn í upphafi og enda þess, en eigi svo fullt í fangi við að halda í keppinautana þar á milli. Nú sé komið að því að bíll þeirra sé sá besti allt keppnistímabilið. Það gæti þýtt enn meiri breytingar á bílnum á keppnistímabilinu.

Ökumenn MacLaren á næsta keppnistímabili verða Jenson Button, sem leiðir liðið eftir brotthvarf Lewis Hamilton sem fór til Mercedes og Sergio Perez sem var áður hjá Sauber liðinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×