Lífið

Notar krem sem sléttir og mýkir

Ellý Ármanns skrifar
Sylvía Briem Friðjóns stjórnmálafræðinemi segir okkur hvað hún notar þegar kemur að snyrti- og húðvörum.

"Ég nota Vichy normaderm dag- og næturkrem. Þetta eru krem sem koma í veg fyrir ójöfnur í húðinni, bólur ásamt því að taka bóluör. Rosalega fersk og næringarík krem. Ég er búin að nota þessi krem í einhvern tíma núna. Mér finnst húðin mín alveg ótrúlega slétt og mjúk. Gott að nota á sumrin og á veturna. Svo finnst mér ekki skemma hvað það er góð lykt af því."

"Farðinn sem ég nota er Infallible frá Loréal helst á í 24 tíma. Mér finnst koma skemmtileg rjómaáferð af þessum farða. Þekur vel og er frekar mött áferð. Svo er það líka með sólarvörn þar af leiðandi er það alveg tilvalið á sumrin og á veturnar til að verja húðina fyrir óhreinindum í loftinu."

"Það sem ég nota á varirnar er 6H glossinn frá Loréal. Ég gæti notað þennan gloss einan og sér og mér finnst ég ótrúlega fín. Hann helst lengi á gefur fína næringu. Ég set hann á mig pæli síðan ekkert meira í því af því hann er bara þarna alltaf jafn fínn og krúttlegur."

"Maskarinn sem ég nota heitir Colossal og er frá Maybelline. Mér finnst hann alveg ómissandi. Skyldueign þar sem hann gerir allt sem hver og ein vill. Hann lengir og þykkir, samt verða augnhárin alls ekki klesst. Svo getur maður sett aðra umferð af honum þá verða augnhárin þéttari og meiri. Ég set aðra umferð þegar ég fer eitthvað fínt. Þá er ég með dramatískari augu finnst það skemmtileg breyting."

"Ég hugsa alveg ótrúlega vel um húðina mína. Ég fer í sturtu skrúbba mig alla með góðum skrúbbi. Set á mig Baby oil frá Johnson Johnson. Finn alveg að húðin verður silkimjúk og endurnærð eftir sturtu."

Sylvía Briem Friðjóns.

Tengdar fréttir

Fann loksins augnskugga sem endist

Söng- og leikkonan Íris Kristinsdóttir sem eignaðist tvíburadrengi í apríl í fyrra hefur nóg að gera þegar kemur að uppeldinu. Íris sem er glæsileg kona upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Notar maskara sem þykkir og lengir augnhárin

"Ég á í raun frekar lítið af snyrtivörum og nota þær hóflega. Ég er ákaflega vandlát á snyrtivörur og hef eytt drjúgum tíma, vangaveltum og aur í að finna þessar vörur sem ég mæli hér með," segir Steinunn Vala hönnuður...

Snyrtivörurnar sem Svala Björgvins notar

Söngkonan Svala Björgvins sem er búsett í Bandaríkjunum er stórglæsileg kona með áberandi fallega húð. Hún upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Maskarinn algjör skyldueign

Katrín Fjeldsted innanhússhönnuður upplýsir okkur hvað hún notar þegar kemur að snyrti- og húðvörum.

Snilld fyrir mömmur sem verða stundum þreyttar

Manúela Ósk Harðardóttir sem heldur meðal annars úti tískublogginu M-x-k.com upplýsir okkur um fimm vörur sem hún getur ekki verið án þegar kemur að húð- og hárumhirðu.

Notar krem stútfullt af andoxunarefnum

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og starfsmaður nýsköpunardeildar Matís er stórglæsileg kona sem hefur nóg að gera samhliða móðurhlutverkinu. Við forvitnuðumst hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega.

Ég elska varaliti og nota þá daglega

María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.