Bílar

Verðlaunabíllinn Toyota GT86

Varla er til það bílatímarit sem ekki hefur veitt bílnum verðlaun.

Eins og greint var frá hér nýlega þá er afturhjóladrifni sportbíllinn Toyota GT86 einn af þeim 9 bílum sem tilnefndir eru í valinu um bíl ársins í Evrópu en úrslitin verða ljós á bílasýningunni í Genf á næstu dögum. Þessi bíll hefur sannarlega sópað til sín verðlaunum frá því hann kom á markað í fyrra og eftirfarandi er listi yfir þau verðlaun sem hann nú þegar hefur hlotið í hinum ýmsu löndum.

Tékkland


1. sæti í vali almennings á bíl ársins 2013

2. sæti í vali á bíl ársins 2013

Danmörk


Heiðursverðlaun í vali á bíl ársins 2013

Þýskaland


Coupe sportbíll ársins hjá AutoBild Sportcars

Írland


Val bílablaðamanna sem Akstursbíll ársins (Performance Car of the Year)

Frakkland


Sportbíll ársins 2013 hjá bílablaðinu Echappement

Bíll ársins hjá bílablöðunum Auto Journal, Auto Moto og Automobile Magazine

Holland


AutoWeek: 1. sæti fyrir aksturseiginleika

Bíll ársins hjá TopGear í Hollandi

Bretland


Akstursbíll ársins hjá tímaritunum Autocar, AutoExpress, MotorTorque og CarThrottle

Bíll ársins hjá Top Gear

Coupe sportbíll ársins hjá Top Gear

Bíll ársins að mati Jeremy Clarkson hjá Top Gear

Bíll ársins hjá dagblaðinu Scotsman

Bíll ársins í flokki Coupe sportbíla í Skotlandi

Besti Coupe sportbíllinn að mati The Sunday Times

Japan


Sérstök viðurkenning og 2. sæti í vali á bíl ársins

Ástralía


Bíll ársins hjá tímaritinu Wheels

TopGear: Skemmtilegasti bíllinn 2012

News Limited/Carsguide Bíll ársins 2012




Fleiri fréttir

Sjá meira


×