Bílar

Brimborg sýnir Volvo V40 R-Design

Finnur Thorlacius skrifar
Volvo V40 lenti í þriðja sæti í kjöri bíls ársins í Evrópu.

Fyrsti Volvo V40 R-Design bíllinn er kominn til landsins og er nú til sýnis í Volvo salnum í Brimborg. Þar fer sérstök sport útgáfa bílsins sem er hlaðin búnaði.

Bíllinn er með breyttan framstuðara, 17" IXION álfelgur, sportfjöðrun ásamt sérstökum vindkljúf neðan á afturstuðara með tvöföldum púststútum. Bíllinn er með sportlega innréttingu, Nubuck sportsæti, leðurklætt stýri með álrönd og R-Design merki, TFT stafrænt mælaborð, álpedalar, gírstöng með upplýstum 3D stöfum, LED dagljós og LED stefnuljós á hliðarspeglum ásamt R-Design stjórnborði.

Sýningarbíllinn er á 18 tommu álfelgum, R-Design sport leðuráklæði á sætum með innsaumuðu R-DESIGN lógói, sólþaki, High Performance hljómtækjum og dökkum afturrúðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×