Bílar

Rolls Royce Wraith er allt sem þú þarft… ekki!

Finnur Thorlacius skrifar
Þakið í bílnum innanverðum er þakið litlum ljósum sem minna á stjörnurnar í himinhvolfinu.

Það er ekki oft sem sagt er frá nýjum bílum frá Rolls Royce, því fram að þessu samanstóð vörulína þeirra af tveimur bílum. Það breytist nú í þrjá. Sá nýjasti hefur fengið nafnið Wraith og er nú kynntur á bílasýningunni í Genf.

Wraith, sem þýðir afturganga á okkar ylhýra, er eiginlega "coupe"-gerð af Ghost bíl Rolls Royce og á að vera svar fyrirtækisins við Continental GT bíl Bentley. Hann er samt miklu dýrari og munar þar 12,5 milljón en verðið á Wraith er 40-52 milljónir, eftir því hversu vel hann er búinn.

Vélin í bílnum er 12 strokka og 624 hestafla og sjálfskiptingin 8 gíra. Bíllinn er svo hlaðinn búnaði og íburði að annað eins hefur vart sést. Bíllinn er tveggja dyra og þær opnast að framan, ekki aftan eins og í flestum bílum. Þakið í bílnum innanverðum er þakið litlum ljósum sem minna á stjörnurnar í himinhvolfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×