Bílar

Frumlegur framúrakstur

Finnur Thorlacius skrifar
Fer heilhring á meðan hann fer framúr, en endar réttur á veginum.

Að mati þessa rússneska ökumanns er of leiðinlegt að fara framúr bíl á hefðbundinn hátt því miklu skemmtilegra er að snúa bílnum í heilhring á meðan framúrakstrinum stendur.

Hann gerir þetta reyndar svo vel á Subaru Impreza WRX bíl sínum að eftir hringinn heldur hann áfram eftir veginum eins og ekkert hafi í skorist. Þetta er ekki á færi flestra og alls ekki hægt að mæla með þessari aðferð. Sjá má aðfarir rússans í myndskeiðinu hér að ofan.Sérdeilis athyglivert, en það er margt skrítið sem gerist á vegunum í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×