Bílar

Hekla sýnir Skoda Rapid

Finnur Thorlacius skrifar
Er á milli Fabia og Octavia í stærð.

Nýjasti meðlimurinn í vaxandi fjölskyldulínu Skoda, Skoda Rapid verður frumsýndur á morgun laugardag í Heklu. Þessi nýi bíll skipar sérstakan sess hjá Skoda því hann er fyrsti bíllinn sem kynntur er til sögunnar í nýrri hönnunarlínu Skoda.

Rapid er ekki nýtt nafn hjá Skoda, því einn bíla Skoda á árunum á milli 1930 til 1940 hét einmitt Rapid og þeir sem eldri eru muna einnig eftir sportlegum Skoda Rapid með vélina að aftan, sem var á markaði hér á landi upp úr 1980.

Skoda Rapid er á milli Fabia og Octavia hvað stærð varðar. Hekla mun bjóða Rapid með 4 gerðum bensínvéla og einni dísilvél, sem og með þremur mismunandi innréttingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×