Bílar

Fjórir eftir í kjöri á bíl ársins

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche Boxter er einn þeirra fjögurra bíla sem eftir eru í kjörinu
Porsche Boxter er einn þeirra fjögurra bíla sem eftir eru í kjörinu
Eftir standa Volkswagen Golf, Porsche Boxter, Toyota GT86 og Mercedes Benz A-Class.

Í upphafi bílasýningarinnar sem nú stendur yfir í Genf var tilkynnt um bíl ársins í Evrópu, Volkswagen Golf. En á bílasýningunni sem hefst brátt í New York verður tilkynnt um hvaða bíll krýndur verður sem bíll ársins í heiminum.

Bílarnir fjórir sem nú bítast um titilinn eru Volkswagen Golf, Porsche Boxter/Cayman, Toyota GT86/Subaru BRZ og Mercedes Benz A-Class, sem valinn var bíll ársins á Íslandi sl. haust. Það kemur í hlut 66 bílablaðamann frá 23 löndum að velja bíl ársins.

Í sportbílaflokknum standa aðeins þrír bílar eftir, áðurupptaldir Toyota GT86/Subaru BRZ og Porsche Boxter/Cayman, auk Ferrari F12 Berlinetta. Verðlaunin fyrir "græna bíl ársins" munu Renault Zoe, Tesla Model S og Volvo V60 Plug-In Hybrid bítast um. Um verðlaun best hannaða bíls ársins keppa Aston Martin Vanquish, Jaguar F-Type og Mazda 6.

Golfinn var kjörinn bíll ársins í Evrópu
Toyota GT86 lenti í öðru sæti í kjöri á bíl ársins í Evrópu
Mercedes Bez A-Class er einn fjögurra sem bítast um vegtylluna eftirsóttu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×