Bíó og sjónvarp

Hélt að hlutverkið væri endalok sín

Sara McMahon skrifar

Leikarinn Rob Lowe fer með hlutverk lýtalæknisins Dr. Jack Startz í kvikmyndinni Behind the Candelabra.

Myndin skartar Michael Douglas og Matt Damon í aðalhlutverkum og segir frá sambandi söngvarans Liberace og Scott Thorson. Leikstjóri myndarinnar er Steven Soderbergh, en sá hefur leikstýrt myndum á borð við Erin Brockovich, Traffic og nú síðast spennumyndinni Side Effects.

Lowe kveðst stundum hafa efast um þá ákvörðun að taka að sér hlutverkið, en útliti hans var breytt töluvert fyrir hlutverkið. „Suma daga hugsaði ég með mér: „Þetta eru endalok ferils míns.“ Þegar ég gekk svo inn á tökustað og sá Michael íklæddan kaftan og Matt klæddan í flauelsstuttbuxur og með hárkollu, hugsaði ég: „Þetta eru endalok okkar allra.“,“ sagði Lowe í nýlegu viðtali.

Behind the Candelabra var frumsýnd í Bandaríkjunum þann 26. maí og hefur fengið lofsamlega dóma og var enginn dauðadómur fyrir leikarana sem tóku aðalhlutverkin að sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×