Lífið

Spennandi sýning á Árbæjarsafni

Ellý Ármanns skrifar

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Kornhúsinu í Árbæjarsafni þegar sýningin Framtíðarsýn og fortíðarhyggja, húsvernd og skipulagsmál í miðbæ Reykjavíkur á síðari hluta 20. aldar var formlega opnuð.  

Sýningin er á vegum nemenda í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands í samvinnu við Árbæjarsafn. Á þessari sýningu eru sagðar sögur af þróun og mótun elsta hluta Reykjavíkur. Sagt er frá stórkarlalegu skipulagi og metnaðarfullri framtíðarsýn, hugmyndum um bílaborgina og stórhýsum sem aldrei risu. 

Þá er sagt frá gömlum húsum sem hafa horfið og öðrum sem fengu að standa og hafa öðlast nýtt líf. Einnig húsum sem hafa skipt um hlutverk í takt við breytingar í samfélaginu. Þá fáum við að sjá hvernig götur segja sögu borgar í stöðugri þróun. Þetta er saga sem ekki sér fyrir endann á. 

Í hugum margra er miðborg Reykjavíkur sérstök, jafnvel einstök. Heildaryfirbragð svæðisins kann að þykja nokkuð sundurleitt, enda má finna þar gömul lágreist timburhús frá 19. öld innan um stórhýsi 20. aldar.

Timbur, bárujárn, steinsteypa og speglagler kallast á. Kannski er það einmitt þessi ófullkomleiki sem gerir miðborgina áhugverða. Er hjarta Reykjavíkur kannski heimili hálfkláraðra hugmynda? 

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar.

Sýningin mun standa yfir í sumar í Árbæjarsafninu til 31. ágúst milli klukkan 10 og 17. 

Sjá meira um sýninguna hér.

Auður Mikaelsdóttir, Sigurjóna Guðnadóttir og Andri Örvarsson.
Erla Gísladóttir og Auður Þorleifsdóttir.
Heiðdís Einarsdóttir, Bára Stefánsdóttir og Óskar Ericsson.
Magnús Skúlason formaður húsafriðunarnefndar og Guðrún Jónsdóttir arkítekt og fyrsti formaður Torfusamtakanna.
Páll Guðmundsson og Kristinn Jóhann Níelsson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.