Bíó og sjónvarp

Al Pacino skildi ekki handritið

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Al Pacino (t.v.) gaf hlutverkið frá sér, og það endaði hjá Harrison Ford.
Al Pacino (t.v.) gaf hlutverkið frá sér, og það endaði hjá Harrison Ford. Samsett mynd/Getty

„Kvöldstund með Al Pacino“ var haldin í London Palladium-leikhúsinu um síðustu helgi, þar sem leikarinn ástsæli sat fyrir svörum fréttakonu um feril sinn fyrir framan áhorfendur. Meðal þess sem kom fram í spjallinu var ástæða þess að Pacino afþakkaði hlutverk Han Solo í fyrstu Stjörnustríðsmyndinni.

„Mér bauðst hlutverkið en ég skildi ekki handritið,“ sagði Pacino, en hann hafði leikið í myndum á borð við The Godfather, Serpico og Dog Day Afternoon þegar leikstjórinn George Lucas bauð honum hlutverk Solo.

Hlutverkið fór að lokum, eins og frægt er orðið, til Harrison Ford, en meðal annarra leikara sem komu til greina voru Chevy Chase, Burt Reynolds, Kurt Russell, Christopher Walken og Bill Murray.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.