Bíó og sjónvarp

Lopez í námudrama

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
mynd/getty
Jennifer Lopez mun leika í sannsögulegu kvikmyndinni The 33, en hún segir frá námuverkamönnum sem sátu fastir neðanjarðar í 69 daga í Chile árið 2010.

Í myndinni fer Antonio Banderas með hlutverk Mario Sepulveda, en hann hlaut viðurnefnið „Super Mario“ fyrir framgöngu sína í námunni. Martin Sheen leikur föður Mario en leikstjórn er í höndum Patriciu Riggen.

Tökur á myndinni hefjast í haust og er handritið sagt hafa verið unnið í nánu samstarfi við námuverkamennina og fjölskyldur þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×