Bílar

Tíu tækninýjungar sem breyta munu bílum

Finnur Thorlacius skrifar
Rafmagnsbílarnir i3 og i8 frá BMW
Rafmagnsbílarnir i3 og i8 frá BMW
Við smíði bíla nútímans er sífellt leitað tækninýjunga sem bæta eiginleika þeirra, gera rekstur þeirra hagkvæmari, öruggari, þægilegri, minnka líkur á bilunum og gera þá umhverfisvænni. En hvaða tækninýjungar eru líklegastar til að hafa mestu áhrifin á næstunni? Bílavefurinn Jalopnik telur að þessar tækninýjungar gætu einmitt verið þær.

1. Nýir orkugjafar

Rafmagn, metan, vetni, háþrýstiloft og ef til vill fleiri orkgjafar fyrir bíla munu breyta heiminum og ekki er jarðefnaorkan ótæmandi. Breyting orkugjafa er líkleg til að verða sú mest afgerandi á næstu árum, ekki síst hvað varðar umhverfisþáttinn og heilsu okkar allra.

2. Sjálfakandi bílar
Það væri ekki ónýtt að geta unnið í aftursætinu með þráðlausa nettengingu og láta bílinn sjálfan um að aka sér á áfangastað. Þessi tækni er þegar til staðar og öryggi farþega ætti að vera meira en ef ökumaður sæi um aksturinn sjálfur með öllum þeim öryggisbúnaði sem er í þessum bílum. Er tímasparandi og eykur öryggi. 

3. Vélar án sveifarása

Bíliðnaðurinn er nánast á byrjunarreit þarna en búið er að sannreyna að vélar geta án þeirra verið og af því hlýst mikill árangur. Þær léttast, eyða minna, menga minna og fækkar íhlutum sem bilað geta. Frumkvöðull þessarar tækni en hinn sænski ofurbílaframleiðandi Königsegg.

4. Notkun koltrefja

Notkun koltrefja hefur stóraukist á undanförnum árum en mun áfram vaxa mjög. Koltrefjar létta bíla afar mikið en styrkja þá í leiðinni. Vandinn er fólginn í háu verði efnisins, en það á eftir að lækka. Er mikið notað í dýra bíla en mun teygja sig neðar í verðflokkum þeirra.

5. Aðlögunarhæf fjöðrun

Þessi tækni má nú þegar fá í margar gerðir bíla en kostar skildinginn. Fjöðrunarbúnaður bílsins lagar sig að undirlaginu og breytir hegðun bílsins og gerir hann hæfari til akstur og bíllinn ver sig betur fyrir vikið. Þessi búnaður mun lækka í verð og teygja sig í fleiri bílgerðir. 

6. Kasthjól

Þessi tækni (KERS) er í mörgum keppnisbílum og er skyld Hybrid tækni að því leiti að orkan sem knýr kasthjólið kemur frá hreyfiorku bílsins sem uppruna sinn á í vélinni. Kasthjólið snýst á allt að 65.000 snúninga hraða á mínútu og þegar afl þess er nýtt skilar það feykimiklu togi. Þessi tækni minnkar eyðslu bíla og skilar mikilli aflaukningu, oftast á skömmum tíma.

7. Nýting vélarhita

Bílvélar búa til mikinn hita sem í þeim flestum fer forgörðum. Með því að nýta þann hita betur til að drífa fleira en miðstöðvar bílanna má spara mikla orku, spara eldsneyti og vera umhverfisvænni í leiðinni. Auðveldast er að gera það gegnum pústkerfi bílanna.

8. Vélarsnúningur sem stjórnast af gírvali

Sumir vilja meina að beinskiptingar séu á hröðu undanhaldi fyrir sjálfskiptingum. En með búnaði eins og er í 2014 árgerð Chevrolet Corvette Stingray og hefur áhrif á snúning vélarinnar með tilliti til þess gírs sem valinn er minnkar eyðslan og hámarksafl fæst úr vélinni hverju sinni.

9. Mælaborðið á framrúðuna

Fá má margar dýrari gerðir bíla með þessari tækni þar sem helstu upplýsingar úr mælaborði bíla er varpað á framrúðuna og ökumenn þurfa ekki að taka augun af veginum. Þessi tækni kemur frá orustuþotum. Hún eykur mjög öryggi og verður sífellt algengari og ódýrari í bílum.

10. Sólarsellur

Notkun sólarsella er mikil hjá húseigendum í Evrópu sem víðar og rafmagnsbílaframleiðandinn Fisker er með sólarsellur á þakinu sem hlaða rafgeyma bílsins. Sólarsellur er góð aðferð til að spara eldsneyti bíla og í sólríkari löndum hentugar til að sjá fyrir megninu af þeirri hleðslu sem rafgeymar bíla krefjast. Sparar eldsneyti og er umhverfisvænt.





×